|
Um Krók bílastöð |
|
Frumstarfsemin byggist á björgun ökutækja af tjónsstað og flutning í þjónustustöð Króks. Losun ökutækja af björgunarbílum fer fram á steyptu/malbikuðu plani í upplýstu veðurskjóli eða innandyra með aðstöðu til grófþrifa og upprætingu spilliefna samkv. reglugerð þegar við á. Innskráning og ljósmyndun fer fram um leið og bifreið er komin í geymsluhúsnæði Króks. Eftir óskum viðskiptavina er bifreiðin þrifin og tjónaskoðuð ásamt því að frekari upplýsingum er bætt í gagnagrunn innskráningarkerfis félagsins. Geymsla tjónsökutækja og tjónamuna er innandyra nema í sérstökum tilfellum. Þar geta eigendur nálgast bifreiðarnar og þá persónulegu muni sem í þeim eru ásamt því að viðskiptavinir fyrirtækisins geta skoðað og metið umfang tjóna eða óskað eftir þeirri þjónustu hjá fyrirtækinu. Eftir að tryggingafélög hafa leyst til sín tjónuð ökutæki eru þau boðin upp og eru uppboð rafræn en uppboðshlutir eru bjóðendum til sýnis og kaupendum til afhendingar í sýningasal. . |
